Danska stórliðið Álaborg fékk sögulegan skell þegar liðið heimsótti GOG í dönsku úrvalsdeildinni um helgina. GOG vann sannfærandi tólf marka sigur, 39-27, eftir að aðeins tveimur mörkum munaði á liðunum í hálfleik. GOG var 16-14 yfir að loknum fyrri hálfleik en heimamenn gjörsamlega stungu af eftir hlé. GOG vann síðari hálfleikinn 23-13 og sendi ríkjandi Danmerkurmeistarana heim með eitt stærsta tap félagsins í langan tíma. Samkvæmt danska handboltasérfræðingnum Rasmus Boysen var þetta stærsta tap Álaborgar gegn dönsku liði í tæp 13 ár. Síðast tapaði liðið stærra gegn dönskum andstæðingi í desember 2013 þegar Skjern vann Álaborg 35-20. Manuel Zehnder fór fyrir GOG og skoraði tíu mörk úr ellefu skotum auk þess að gefa þrjár stoðsendingar. Andreas Magaard skoraði sex mörk en færeyska stórstjarnan Óli Mittún skoraði fjögur mörk, gaf þrjár stoðsendingar og fiskaði tvö vítaköst. Juri Knorr og Tobias Nielsen voru markahæstir hjá Álaborg með sex mörk hvor en Mads Hoxer skoraði fimm. Niklas Landin varði aðeins fimm af 33 skotum sem hann fékk á sig og Fabian Norsten náði ekki að verja eitt einasta af þeim níu skotum sem hann mætti. GOG er enn taplaust í dönsku úrvalsdeildinni eftir sigurinn og situr á toppi deildarinnar. Álaborg er hins vegar í þriðja sæti og fjórum stigum á eftir toppliðinu. Liðin mættust fimm sinnum á síðustu leiktíð og þá vann Álaborg alla fimm leikina.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.