Afturelding flaug áfram eftir sigur í Kórnum
Egill Bjarni Friðjónsson

HK og Afturelding mættust í Powerade-bikar karla en leikið var í Kórnum. Aftuelding byrjaði leikinn betur og voru yfir í hálfleik 14-19. Gestirnir úr Mosfellsbæ héldu áfram í síðari hálfleik og lönduðu að lokum níu marka sigri. 26-35 og verða Mosfellingar í pottinum þegar dregið verður í næstu umferð bikarsins.

Atkvæðamestur í liði HK í kvöld var Örn Alexanderson en hann skoraði 8.mörk. Trúgvi Hávardsson skoraði fjögur. Gunnar Dan Hlynsson og Kári Tómas Hauksson þrjú og aðrir skoruðu minna.

Atkvæðamestur í liði Mosfellinga var Oscar Sven Leithoff Lykke en hann skoraði tíu mörk í kvöld. Ævar Smári Gunnarsson, Árni Bragi Eyjólfsson, Hákon Daði Styrmisson, Haraldur Björn Hjöfleiffson, Stefán Magni Hjartarsson skoruðu allir þrjú mörk. Aðrir skoruðu minna.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top