Stórsigur Hauka á Stjörnunni í 16-liða úrslitum Powerade-bikars karla í gærkvöldi var til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins. Þar voru sérfræðingar þáttarins afar hrifnir af frammistöðu Hauka sem unnu ellefu marka sigur, 35-24, og tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar. Haukarnir sýndu mikla yfirburði í leiknum og eftir að staðan hafði verið jöfn, 3-3, skoruðu heimamenn níu mörk í röð og breyttu stöðunni í 12-3. Staðan í hálfleik var 19-8 og höfðu Haukarnir því nánast gert út um leikinn strax í fyrri hálfleik. „Haukunum hundleiddist að fagna upp í stúku og garga á hvorn annan á þessum tímapunkti,“ sagði Sérfræðingurinn kaldhæðinn í Handkastinu þegar rætt var um stemninguna í liði Hauka. Stymmi klippari tók undir og var sérstaklega hrifinn af viðbrögðum leikmanna Hauka við vel útfærðum sóknaraðgerðum. „Ég sá Össur og Hergeir gjörsamlega sturlast yfir flottri stimplun sem endaði niður í horni eins og þetta hafi verið flottasta mark sem þeir hafa skorað á ævinni. Haukarnir líta fáránlega vel út,“ sagði Stymmi klippari. Davíð Már Kristinsson, gestur þáttarins, telur að Haukar eigi að setja markið hátt á tímabilinu og stefna á að vinna alla þrjá titlana sem eru í boði. „Þeir hljóta að setja stefnuna á að vinna þrefalt, ég trúi ekki öðru,“ sagði Davíð Már. Stymmi klippari benti jafnframt á að það væri ekki eingöngu sigurinn sem væri athyglisverður heldur hvernig Haukarnir væru farnir að gera út um leiki sína með afgerandi hætti. „Þeir eru líka farnir að slátra leikjum, maður sá þetta ekkert alltaf undir stjórn Ásgeirs Arnar þrátt fyrir að þeir hafi verið góðir en þetta var yfirleitt alltaf bras. Núna gengu þeir frá þessum leik og halda uppteknum hætti og vinna auðveldan ellefu marka sigur,“ sagði Stymmi klippari. Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar og hafa farið frábærlega af stað í Olís-deildinni þar sem liðið er með fullt hús stiga. Með sigrinum á Stjörnunni eru Haukarnir einnig komnir í 8-liða úrslit Powerade-bikarsins og ljóst að væntingarnar til liðsins eru miklar á tímabilinu en liðið er ríkjandi bikarmeistari frá síðustu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.