ÍBV kynnir Corneliu til leiks
ÍBV

Sænski markvörðurinn, Cornelia Hermansson er gengin til liðs við ÍBV og hefur undirritað tveggja ára samning við félagið. Handkastið greindi frá tíðindunum í morgun en nú hefur félagið formlega tilkynnt hana til leiks.

Cornelia lögleg með ÍBV – Félagið hefur ekkert tilkynnt um komu hennar

Cornelia er 26 ára gamall markvörður en hún kemur frá Svíþjóð. Hún lék síðast með Kungälvs í heimalandi sínu. Áður lék Cornelia við góðan orðstír með Selfossi og þekkir því til íslensk handbolta og hefur reynslu af því að spila hér á landi.

,,Við erum ákaflega glöð að fá Corneliu til liðs við ÍBV og hlökkum mikið til samstarfsins," segir í tilkynningunni frá ÍBV.

Cornelia kom til Vestmannaeyja undir lok síðasta mánaðar og hefur því æft með liðinu síðustu daga. Gera má ráð fyrir að hún styrki lið ÍBV gríðarlega en liðið er feykilega vel mannað og er liðið spáð af mörgum í titilbaráttu í vetur.

ÍBV mætir ÍR í 5.umferð Olís-deildar kvenna klukkan 13:00 á morgun í Skógarselinu og er Cornelia lögleg í þeim leik.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top