Anita Muratovic, svartfellski miðjumaðurinn hjá Víking í Grill 66 deild kvenna er með slitið krossband. Meiddist hún fyrir nokkrum vikum en eftir myndatöku fyrir nokkrum dögum er ljóst að hún er með slitið krossband. Það er ljóst að þetta er mikið áfall fyrir Víkings liðið en Anita hafði farið vel af stað með liðinu í upphafi móts og m.a skoraði hún 13 mörk í fyrstu 2 leikjunum fyrir Víking. "Hún er með slitið krossband. Því miður er þetta alltaf ár eins og fólk þekkir varðandi þessi meiðsli. Anita er klárlega leikmaður sem við söknum. Hún var að detta flott inn í þetta hjá okkur og er svosem ennþá inn í þessu. Hún mætir og æfir það sem hún getur og hlær og brosir. Þetta eru fyrstu alvarlegu meiðslin sem hún lendir í á ferlinum og er þetta því miður erfiður vetur sem hún er að fara inn í. En ég og restin af félaginu erum klár í þetta verkefni með henni og ætlum að hjálpa henni í þessu" sagði Gísli Steinar Jónsson þjálfari Víkings í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.