Igor Chiseliov, Moldóvinn í liði Harðar, varð fyrir því óláni nú á dögunum að meiða sig á hendi við vinnu á Ísafirði. Hefur hann verið frá æfingum og keppni um einhvern tíma að þeim sökum. "Hann slasaði sig á mjög viðkvæmu svæði á vinstri hendi við vinnu. Hann er á góðri leið að ná fullum styrk og verður klár í slaginn aftur mjög fljótlega" sagði Pedro Nunes þjálfari Harðar í samtali við Handkastið. Igor, sem kom til Harðar frá liði Þórs Akureyri í lok ágúst, var búinn að spila 2 leiki með Herði og skorað 8 mörk áður en hann meiddist. Harðverjar hafa spilað 4 leiki og hafa unnið 2 leiki en tapað 2 leikjum. Sitja þeir í 5. sæti deildarinnar þegar þetta er ritað.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.