Það er óhætt að segja að 2008 árgangurinn hafi sett mark sitt á upphaf Olís-deildar karla. Eftir fyrstu fimm umferðirnar eru 18 ára leikmenn markahæstir hjá Val, FH og Haukum, þremur af stærstu og sigursælustu félögum landsins. Gunnar Róbertsson hefur farið fyrir Val og trónir jafnframt á toppi lista yfir markahæstu leikmenn deildarinnar með 66 mörk í fimm leikjum. Gunnar hefur þar töluvert forskot á næstmarkahæsta leikmann Vals, Arnór Snæ Óskarsson, sem hefur skorað 32 mörk. Svipaða sögu er að segja hjá Haukum. Þar er Freyr Aronsson, einnig fæddur árið 2008, markahæstur með 42 mörk. Næstur kemur Skarphéðinn Ívar Einarsson með 26 mörk, en Össur Haraldsson hefur skorað 25. Hjá FH hefur Ómar Darri Sigurgeirsson tekið við stóru hlutverki í sóknarleik liðsins. Hann hefur skorað 38 mörk í fyrstu fimm umferðunum og er þar með langmarkahæstur FH-inga. Næstur honum er Símon Michael Guðjónsson með 24 mörk. Staðan verður enn athyglisverðari þegar haft er í huga að Valur, FH og Haukar eru ekki aðeins sigursælustu félög íslenskrar handboltasögu heldur voru liðin þrjú einnig talin í hópi helstu kandídata í toppbaráttu deildarinnar fyrir tímabilið. Samtals hafa þremenningarnir úr 2008 árganginum skorað 146 mörk í fyrstu fimm umferðunum; Gunnar 66, Freyr 42 og Ómar Darri 38. Það verður að teljast afar óvenjulegt, ef ekki einstakt, að þrír leikmenn úr sama unga árganginum séu á sama tíma markahæstir hjá jafn burðugum félögum og Val, FH og Haukum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.