Lovísa Thompson og félagar í Benfica tryggðu sér sæti í þriðju umferð undankeppni Evrópudeildar kvenna með stórsigri á króatíska liðinu Zrinski Čakovec í gær. Larvik komst einnig áfram en Dana Björg Guðmundsdóttir var ekki í leikmannahópi norska liðsins. Benfica vann síðari leik liðanna á útivelli, 41–21, eftir að hafa verið 19–10 yfir í hálfleik. Portúgalska liðið hafði unnið fyrri leikinn 31–16 og vann því einvígið samanlagt 72–37. Lovísa skoraði eitt mark úr fimm skotum. Catarina Bernardino var markahæst hjá Benfica með átta mörk og nýtti öll skot sín, en Maria Eduarda Santos bætti við sjö mörkum. Larvik vann Nice, 34–32, á heimavelli í síðari leik liðanna í sömu umferð Evrópudeildarinnar. Larvik var 13–10 yfir í hálfleik og sigurinn dugði liðinu til að komast áfram með eins marks mun samanlagt, 61–60, eftir 28–27 tap í Frakklandi. Dana Björg var ekki með Larvik en hún virðist vera að glíma við meiðsli miðað við færslu hennar samfélagsmiðlasíðu sína á dögunum. Amanda Kurtović fór fyrir norska liðinu með tíu mörk úr ellefu skotum og Maja Furu Sæteren skoraði átta. Í Þýskalandi komst Lilja Ágústsdóttir ekki á blað þegar Zwickau tapaði á útivelli fyrir Halle-Neustadt, 33–25, í fimmtu umferð úrvalsdeildarinnar. Heimakonur voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 15–11, og tvöfölduðu forskotið eftir hlé. Nina Ramušović var markahæst hjá Zwickau með sjö mörk, en Liv Navne og Amelia Worożańska skoruðu fjögur hvor. Zwickau er enn í leit af sínum fyrsta sigri í deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.