Ungur starfsmaður Kielce lést á leið á Meistaradeildarleik
Andreas Gora /AFP

Harmleikur hefur skekið pólska handboltaheiminn eftir að tvítugur starfsmaður Industria Kielce lést ásamt föður sínum í bílslysi á miðvikudaginn í síðustu viku.

Szymon Zaczyński, sem starfaði við grafíska hönnun fyrir markaðs- og samskiptadeild pólska stórliðsins, var á leið til Kielce ásamt föður sínum til að fylgjast með leik liðsins gegn Magdeburg í Meistaradeild Evrópu þegar slysið varð. Feðgarnir létust báðir í slysinu.

Zaczyński hafði aðeins starfað fyrir Kielce í tvo mánuði en hafði þegar vakið athygli fyrir störf sín. Hann hafði einnig unnið að verkefnum fyrir pólska handknattleikssambandið.

Ferðin á leikinn átti að vera sérstök fyrir hinn tvítuga Zaczyński, því þar ætlaði hann í fyrsta sinn að hitta leikmenn og starfsfólk félagsins augliti til auglitis.

Í yfirlýsingu frá Industria Kielce er Zaczyński minnst með hlýhug.

„Þótt hann hafi aðeins starfað með okkur í stuttan tíma var Szymon þegar orðinn mikilvægur hluti af teyminu okkar. Hann var ungur og metnaðarfullur einstaklingur sem hafði mikla ástríðu fyrir grafískri hönnun og íþróttum.“

Félagið segir fráfall hans sérstaklega átakanlegt í ljósi þess hversu björt framtíðin hafi verið fyrir honum.

Industria Kielce hefur sent fjölskyldu og aðstandendum feðganna innilegar samúðarkveðjur.

Leikur Kielce og Magdeburg fór fram á miðvikudagskvöldið þar sem þýska liðið, með þá Gísla Þorgeir Kristjánsson og Ómar Inga Magnússon innanborðs, hafði betur, 35–30 en íslenska tvíeykið skoraði 22 mörk samtals í leiknum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top