Kristianstad áfram ósigraðir í Svíþjóð
Eyjólfur Garðarsson

Nokkrir leikir fóru fram á Norðurlöndunum í dag en meistararnir í Svíþjóð, Kristianstad tóku á móti Ystad á heimavelli sínum og átta liða úrslit norska bikarsins kláraðist í dag.

Kristianstad höfðu byrjað tímabilið heima fyrir af krafti og það hélt áfram í dag þegar liðið tók á móti Ystad. Heimamenn höfðu tögl og haldir á leiknum frá upphafi til enda, þeir leiddu með sex mörkum í hálfleik og héldu allan tímann þægilegri forystu. Lokatölur urðu 29-23 og Íslendingarnir komu allir við sögu í leiknum.

Andri Erlingsson var atkvæðamestur af Íslendingunum en hann skoraði fjögur mörk úr átta skotum og gaf þrjár stoðsendingar að auki. Baldur Fritz Bjarnason skoraði tvö mörk úr fjórum skotum, Einar Bragi Aðalsteinsson hafði óvenju hægt um sig að sinni og skoraði aðeins eitt mark úr þremur skotum, gaf tvær stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki. Að lokum gaf Ólafur Guðmundsson tvær stoðsendingar og klikkaði eina skoti sínu í leiknum.

Meistarar Kristianstad áfram ósigraðir eftir fjórar umferðir og eru einir á toppi deildarinnar með átta stig. Alingsås koma þar á eftir með sex stig og Amo sitja í þriðja sætinu með fimm stig.

Í Danmörku töpuðu Skanderborg óvænt á heimavelli gegn Fredericia, 29-31 en Kristján Örn Kristjánsson, Donni átti erfitt uppdráttar með eitt mark úr fimm skotum en Skanderborg sitja í sjöunda sæti deildarinnar með tíu stig rétt eins Fredericia og Sønderjyske.

Átta lið úrslit norska bikarsins kláruðust í dag með þremur leikjum, Bergen unnu Bergsøy með tveimur mörkum, 34-32 en Íslendingaliðin Drammen og Sandefjord áttu bæði leik.

Drammen tók á móti Kolstad í hörkuleik þar sem gestirnir reyndust sterkari aðilinn og unnu þriggja marka sigur, 27-30. Ísak Steinsson átti þrátt fyrir það flottan leik í marki heimamanna með ellefu varin skot af þeim þrjátíu sem hann fékk á sig eða 37% markvarsla.

Hitt Íslendingaliðið, Sandefjord vann Kristiansand með sex mörkum, 34-28. Sigurjón Guðmundsson átti mjög góðan leik í marki Sandefjord en hann varði fjórtán skot af þeim þrjátíu og níu sem hann fékk á sig eða 36% markvarsla. Það eru því fjögur Íslendingalið í pottinum en Elverum sló út Runar á föstudaginn.

Úrslit dagsins:

Kristianstad 29-23 Ystad

Skanderborg 29-31 Fredericia

Drammen 27-30 Kolstad

Sandefjord 34-28 Kristiansand

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top