Viggó hélt að sigurinn væri úr sögunni – Ótrúleg tilfinning
Tom Weller /AFP

Viggó Kristjánsson var í aðalhlutverki á dramatískum lokasekúndum þegar Erlangen vann ótrúlegan 33-32 sigur á Melsungen í 8. umferð þýsku Bundesligunnar í gær.

Viggó fékk gullið tækifæri til að tryggja Erlangen sigurinn en misnotaði vítakast þegar 24 sekúndur voru eftir. Það kom þó ekki að sök því Marek Nissen tryggði Erlangen sigurinn með marki í autt markið á lokasekúndunni.

Melsungen byrjaði leikinn betur og komst í 13-10 um miðjan fyrri hálfleik. Erlangen svaraði hins vegar með frábærum kafla og sneri stöðunni sér í vil. Heimamenn leiddu 18-16 í hálfleik eftir að Nebojsa Simic, markvörður Melsungen, hafði varið vítakast frá Viggó á lokasekúndu fyrri hálfleiks.

Erlangen hélt áfram að hafa frumkvæðið í síðari hálfleik og komst mest fjórum mörkum yfir, 24-20, áður en Melsungen svaraði með fjórum mörkum í röð og jafnaði metin í 24-24.

Í kjölfarið tók við æsispennandi lokakafli þar sem liðin skiptust á að hafa forystuna. Reynir Þór Stefánsson kom Melsungen tveimur mörkum yfir, 28-26, þegar rúmar tíu mínútur voru eftir en Erlangen náði að jafna metin á ný. Maxsim Lochman kom Erlangen yfir, 32-31, þegar um tvær mínútur voru eftir en Nikolaj Enderleit jafnaði fyrir Melsungen.

Þegar 24 sekúndur voru eftir fékk Erlangen vítakast eftir að brotið hafði verið á Eloy Morante Maldonado. Viggó steig á vítalínuna en Simic varði frá honum í þriðja sinn úr vítakasti í leiknum.

Melsungen fékk því tækifæri til að tryggja sér sigurinn í síðustu sókninni og tók markvörðinn af velli til að sækja með sjö útileikmönnum.

Erik Balenciaga tapaði hins vegar boltanum þegar Marek Nissen komst inn í sendingu hans. Nissen áttaði sig strax á því að mark Melsungen var autt og skoraði sigurmarkið af eigin vallarhelmingi þegar lokaflautið gall.

Viggó viðurkenndi eftir leikinn að hann hefði nánast verið búinn að afskrifa sigurinn eftir að hafa misnotað vítakastið.

„Eftir að ég klikkaði á vítinu var möguleikinn á að við gætum unnið eiginlega ekki lengur í hausnum á mér. Þegar Marek vann síðan boltann og ég sá að markið var autt var það ótrúleg tilfinning,“ sagði Viggó í viðtali eftir leikinn.

„Þökk sé Marek fer ég heim með góða tilfinningu í dag,“ bætti Viggó við.

Nissen, sem skoraði sex mörk í leiknum, lýsti einnig aðdraganda sigurmarksins. „Þegar ég steig fram hugsaði ég að hann myndi senda boltann fram hjá mér. Síðan opnaðist glufa og mér tókst einhvern veginn að ná boltanum,“ sagði Nissen.

Viggó skoraði þrjú mörk fyrir Erlangen í leiknum en Reynir Þór Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir Melsungen. Þetta var fyrsti sigur Erlangen gegn Melsungen síðan í apríl 2022 og hefur liðið enn ekki tapað heimaleik á tímabilinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top