Hraðinn er ekki þeirra sterkasta hlið
HSB Photo

FH mætir portúgalska liðinu Marítimo á útivelli í þriðju umferð Evrópudeildar karla í kvöld. Hefst leikurinn klukkan 18:45 og verður sýndur í beinni á Livey.

FH-ingar eru án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar en Marítimo er með tvö stig eftir sigur á spænska liðinu Bidasoa í síðustu umferð.

Aron Pálmarsson, þjálfari FH sagði í samtali við Handkastið að verkefnið verði krefjandi en telur Hafnfirðinga eiga möguleika á að ná hagstæðum úrslitum.

„Brekkan er vissulega brött. Það þarf allt að ganga upp hjá okkur og við lærðum mikið af síðasta evrópuleik þar sem við fengum að finna hversu sterk þessi Evrópudeild er,“ segir Aron við Handkastið.

FH tapaði síðasta leik sínum í keppninni gegn franska liðinu Limoges á heimavelli, 46-33, þar sem Frakkarnir sýndu mikla yfirburði. Þrátt fyrir erfiða byrjun í Evrópudeildinni segir Aron að staðan á leikmannahópi FH sé góð fyrir leikinn í Portúgal.

„Staðan er mjög góð, menn ferskir og tilbúnir í slaginn.“

Aron segir Marítimo spila sérstakan sóknarleik sem FH-ingar hafi lítið þurft að glíma við það sem af er tímabili.

„Þeir spila nánast bara sjö á móti sex sem við höfum lítið sem ekkert verið að díla við í vetur. Þeir eru með miklar skyttur sem þarf að ganga út í og stórir og sterkir varnarlega.“

Hann telur þó að FH geti nýtt sér ákveðna veikleika portúgalska liðsins og segir mikilvægt að Hafnfirðingar nái að halda uppi miklum hraða í leiknum.

„Hraðinn er ekki þeirra sterkasta hlið þannig að okkar séns er að keyra upp hraðann til að stríða þeim.“

Á sama tíma í kvöld mætast Valur og Tatabánya á Hlíðarenda klukkan 18:45 og því verða tvö íslensk félagslið í eldlínunni í Evrópudeildinni í kvöld.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top