Viking fengu mikinn skell í Noregi
Kristinn Steinn Traustason

Einn leikur fór fram í norsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar Tryggvi Garðar Jónsson og liðsfélagar hans í Viking mættu Nærbø á útivelli.

Fyrir leik liðanna voru Viking með fjögur stig í tólfta sæti deildarinnar á meðan heimamenn voru í sjötta sæti með tveimur stigum meira eða sex stig.

Leikurinn í kvöld var því miður aldrei spennandi, heimamenn voru töluvert sterkari aðilinn frá fyrstu mínútu og leiddu með sjö mörkum í hálfleik, 19-12. Gestirnir frá Stafangri komust aldrei nær Nærbø því heimamenn bættu bara í og unnu að lokum þægilegan ellefu marka sigur, 39-28.

Tryggvi Garðar skoraði fjögur mörk úr sjö skotum fyrir gestina sem eru áfram í tólfta sæti á meðan Nærbø hoppar upp í fjórða sætið.

Úrslit kvöldsins:

Nærbø 39-28 Viking

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top