KA vann fjögurra marka sigur á Aftureldingu, 32-28, í Olís-deild karla á Akureyri í kvöld. Þetta var fyrsti deildarsigur KA á Mosfellingum síðan 2019 og lyfti liðinu upp í 2. sæti deildarinnar. KA hafði tapað tveimur leikjum í röð fyrir viðureign kvöldsins, gegn Stjörnunni í deildinni og Víkingi í bikarnum. Afturelding kom hins vegar til leiks með fjóra sigra í röð á bakinu. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. KA komst í 7-4 en gestirnir unnu muninn upp og staðan var jöfn í hálfleik, 15-15. Heimamenn náðu undirtökunum í síðari hálfleik og komust fimm mörkum yfir, 27-22, þegar tæpar níu mínútur voru eftir. Afturelding minnkaði muninn í tvö mörk, 28-26, en KA svaraði og tryggði sér að lokum fjögurra marka sigur. Meiðsli settu svip sinn á kvöldið hjá Aftureldingu. Hákon Daði Styrmisson meiddist illa í fyrri hálfleik og lék ekki meira. Atvikið leit ekki vel út og er áhyggjuefni fyrir bæði Hákon Daða og Mosfellinga. Þá meiddist Harri Halldórssonundir lok leiks og gat ekki tekið þátt á lokamínútunum. Dagur Árni Heimisson og Dagur Gautason voru markahæstir hjá KA með átta mörk hvor. Ágúst Elí Björgvinssonvarði 14 skot. Hjá Aftureldingu voru Harri Halldórsson og Oscar Sven Leithoff Lykke markahæstir með fimm mörk hvor. Árni Bragi Eyjólfsson, Hákon Daði Styrmisson og Stefán Magni Hjartarson skoruðu fjögur mörk hver. Einar Baldvin Baldvinsson varði sjö skot og Sigurjón Bragi Atlason eitt.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.