Tvíburasystur sameinaðar eftir tólf ár
Attila KISBENEDEK / AFP

Norsku handboltatvíburarnir Sanna og Silje Solberg eru loksins orðnar liðsfélagar á ný eftir tólf ára aðskilnað í félagsliðahandboltanum. Systurnar leika nú saman hjá danska stórliðinu Team Esbjerg en í viðtali á heimasíðu félagsins rifja þær upp þegar þær voru nálægt því að sameinast árið 2019.

Sanna og Silje léku síðast saman í félagsliði árið 2014 en þá skildu leiðir þeirra þegar Sanna gekk til liðs við Larvik í Noregi og Silje hélt til Danmerkur þar sem hún samdi við Holstebro.

Þrátt fyrir að hafa verið samherjar í norska landsliðinu í gegnum tíðina hafa þær síðan leikið með ólíkum félagsliðum. Árið 2019 var hins vegar möguleiki á að systurnar myndu sameinast á ný. Sanna hafði þá verið hjá Team Esbjerg í tvö ár og félagið sýndi áhuga á að fá Silje til liðs við sig.

Silje ákvað hins vegar að hafna möguleikanum þar sem hana dreymdi um að leika með ungverska stórliðinu Győr.

„Mig hafði alltaf dreymt um að spila með Győr og félagið sýndi mér líka áhuga þetta árið. Þau ákváðu hins vegar að fá annan markvörð en ég hafði á tilfinningunni að annað tækifæri myndi gefast árið eftir,“ sagði Silje.

Sanna var ekki alveg sátt við ákvörðun systur sinnar.

„Það var svolítil óánægja í kjölfarið því ég hafði vonast til að hún kæmi hingað. Það liðu því nokkrir dagar áður en við töluðum saman aftur,“ sagði Sanna. Árin liðu og Silje lék meðal annars með Győr og Vipers Kristiansand áður en norska félagið varð gjaldþrota.

Þegar Team Esbjerg vantaði markvörð opnaðist loksins möguleikinn á að sameina systurnar á ný. Silje gekk til liðs við Esbjerg undir lok síðasta tímabils en þá var Sanna ólétt og því gátu þær ekki strax leikið saman.

Nú eru þær hins vegar báðar komnar á fullt og njóta þess að vera aftur samherjar. Systurnar segja að endurfundirnir hafi ekki aðeins þýðingu fyrir handboltann heldur einnig fjölskyldur þeirra. Báðar eiga þær tvær dætur á svipuðum aldri og geta fjölskyldurnar nú eytt mun meiri tíma saman.

„Stærsti kosturinn er að við höfum hvor aðra í daglegu lífi. Við eigum báðar tvær stelpur sem eru á sama aldri og því verður þetta mjög gott fyrir okkur báðar og fjölskyldurnar,“ sagði Silje.

Sanna hefur leikið með Team Esbjerg frá árinu 2017 og er leikjahæsti leikmaður í sögu félagsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top