Viking með mikilvægan sigur í fallbaráttunni
Kristinn Steinn Traustason

Þó nokkur íslendingalið voru í eldlínunni í dag í Noregi og Danmörku en meðal annars var Íslendingaslagur í norsku úrvalsdeildinni þegar Viking tók á móti Drammen í mikilvægum fallbaráttuslag en bæði lið eru í neðri hluta deildarinnar.

Heimamenn voru töluvert sterkari aðilinn í Stafangri í dag þegar Viking tók á móti Drammen en Tryggvi Garðar Jónsson skoraði fjögur mörk úr fimm skotum og gaf tvær stoðsendingar fyrir heimamenn sem unnu frábæran sigur, 33-26 en með sigrinum fara Viking upp í tíunda sæti deildarinnar og eru ekki nema stigi frá sjötta sætinu.

Ísak Steinsson var hluta leiksins í marki Drammen og varði vel en hann varði sjö skot af þeim tuttugu og einu sem hann fékk á sig eða 33% markvarsla. Drammen hafa byrjað gríðarlega illa á þessu tímabili og eru í þriðja neðsta sæti deildarinnar með fjögur stig.

Tryggvi Þórisson var ekki í liði Elverum í dag sem vann öruggan sigur á Arendal á heimavelli, 34-25 en Elverum eru áfram á toppi deildarinnar í Noregi með fullt hús stiga, sextán stig eftir átta umferðir.

Í dönsku úrvalsdeildinni tóku Skjern á móti Ribe-Esbjerg en Elvar Ásgeirsson var sem fyrr á sínum stað í liði gestanna. Skjern reyndust þó of sterkir fyrir gestina og unnu fimm marka sigur, 29-24. Elvar skoraði fjögur mörk úr tíu skotum og gaf tvær stoðsendingar fyrir Ribe-Esbjerg. Ribe-Esbjerg hafa aðeins fatast flugið að undanförnu eftir frábæra byrjun en liðið hefur nú tapað tveimur leikjum í röð.

Þeir sitja þó áfram í þriðja sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir meisturunum í Álaborg og fjórum stigum á eftir GOG sem eru enn taplausir á toppi deildarinnar.

Úrslit dagsins:

Viking 33-26 Drammen

Elverum 34-25 Arendal

Skjern 29-24 Ribe-Esbjerg

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top