Fjölmargir Íslendingar voru í eldlínunni með félagsliðum sínum víðs vegar um Evrópu um helgina. Guðmundur Bragi Ástþórsson stal senunni í Austurríki, Óðinn Þór Ríkharðsson fór á kostum í Íslendingaslag í Sviss og Úlfar Páll Monsi Þórðarson tryggði sér sæti í næstu umferð Evrópubikarsins. Guðmundur Bragi Ástþórsson átti stórleik þegar Bregenz vann gríðarlega mikilvægan 35-34 sigur á nágrönnum sínum í Alpla Hard í austurrísku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Guðmundur Bragi var markahæstur allra leikmanna með þrettán mörk og skoraði sjö þeirra í síðari hálfleik. Jón Ómar Gíslason var einnig í leikmannahópi Bregenz en komst ekki á blað. Staðan var jöfn í hálfleik, 17-17, en Bregenz byrjaði síðari hálfleikinn af miklum krafti og náði fjögurra marka forskoti. Hard tókst að minnka muninn en Bregenz hélt út og vann sinn fyrsta sigur gegn nágrönnum sínum síðan í maí 2022. Með sigrinum fór Bregenz upp í fjórða sæti deildarinnar með níu stig eftir átta leiki. Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen unnu öruggan ellefu marka sigur á GC Amicitia Zürich, 37-26, í svissnesku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Óðinn Þór átti frábæran leik og skoraði átta mörk úr níu skotum fyrir Kadetten sem leiddi 19-13 í hálfleik. Birgir Már Birgisson skoraði tvö mörk fyrir Zurich sem er í 7.sæti deildarinnar með átta stig. Kadetten er á toppi svissnesku úrvalsdeildarinnar með 21 stig. Úlfar Páll Monsi Þórðarson og félagar í Alkaloid frá Norður-Makedóníu tryggðu sér sæti í 32-liða úrslitum Evrópubikarsins eftir öruggan 32-18 útisigur á Ferlach í Austurríki á laugardaginn. Úlfar Páll Monsi skoraði tvö mörk í leiknum en Alkaloid hafði unnið fyrri viðureign liðanna 31-22 á heimavelli. Alkaloid vann því einvígið samanlagt 63-40 og er komið örugglega áfram í næstu umferð keppninnar. Sveinn Jóhannsson og félagar í Chambéry máttu þola tólf marka tap gegn Nantes í frönsku úrvalsdeildinni á laugardaginn, 41-29. Chambéry byrjaði leikinn ágætlega en Nantes náði sex marka forskoti fyrir hálfleik, 21-15. Heimamenn bættu jafnt og þétt við forskotið í síðari hálfleik og unnu að lokum öruggan sigur. Sveinn Jóhannsson var ekki á meðal markaskorara Chambéry í leiknum. Bjarki Már Elísson og félagar í Paris Saint-Germain unnu stórsigur á Saint-Raphaël, 42-28, í frönsku úrvalsdeildinni. Parísarliðið heldur þar með áfram góðu gengi sínu í frönsku deildinni. Bjarki Már skoraði tvö mörk í leiknum en Noah Gaudin var markahæstur með sex mörk. Breki Hrafn Árnason og félagar í Benfica töpuðu naumlega gegn Marítimo, 27-28, í portúgölsku úrvalsdeildinni. Aðeins eitt mark skildi liðin að þegar upp var staðið og Benfica varð því að sætta sig við tap. Marítimo er með FH í riðli í Evrópudeildinni. Orri Freyr Þorkelsson skoraði tvö mörk þegar Sporting Lissabon vann öruggan tólf marka sigur á Póvoa, 43-31, í portúgölsku úrvalsdeildinni. Sporting heldur þar með áfram sigurgöngu sinni í portúgölsku deildinni en liðið er á toppi deildarinnar með 27 stig, jafn mörg stig og Porto.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.