Fjórða tapið í röð hjá Arnóri Atla og félögum
Tvis Holstebro

Arnór Atlason og lærisveinar hans í TTH Holstebro eru í erfiðri stöðu í dönsku úrvalsdeildinni eftir fjórða tapleik liðsins í röð í gær. TTH Holstebro tapaði gegn Skanderborg AGF en liðið hefur átt erfitt uppdráttar í deildinni undanfarnar vikur og situr í tíunda sæti.

Arnór Atlason stýrir liðinu og tveir íslenskir leikmenn eru einnig á mála hjá félaginu, þeir Jóhannes Berg Andrason og Benedikt Gunnar Óskarsson. Jóhannes Berg skoraði þrjú mörk í tapinu gegn Skanderborg AGF.

Eskil Dahl Reitan, leikmaður TTH Holstebro, var afar svekktur eftir tapið og sagði að liðið hefði kastað frá sér góðu tækifæri til að ná í stig.

Arnór hafði einnig lýst yfir óánægju með frammistöðu liðsins fyrir leikinn. Hann sagði að stöðugleika hefði skort í spilamennskuna og að liðið gæti ekki endalaust skýlt sér á bak við meiðsli lykilmanna. Þrátt fyrir erfiða byrjun í dönsku úrvalsdeildinni hefur TTH Holstebro einnig verið í eldlínunni í Evrópudeildinni á tímabilinu.

Næsti deildarleikur liðsins verður gegn Ísaki Gústafssyni og félögum í TMS Ringsted , 1. nóvember og ljóst að Arnór og lærisveinar hans þurfa að snúa gengi sínu við ætli þeir sér að berjast um sæti í úrslitakeppninni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top