Haukar 2 og HK 2 mættust í kvöld í Grill 66 deild karla. Leikið var á Ásvöllum. Það blés ekki byrlega fyrir heimamenn í Haukum í upphafi leiks en HK-ingar komust strax í 0-3. Stuttu seinna komust þeir í 4-7 og útlitið gott fyrir þá. Leikurinn jafnaðist síðan fljótt og Haukamenn sigu svo hægt og fljótlega fram úr. Voru þeir yfir í hálfleik 16-13. Í seinni hálfleik náðu HK-ingar aldrei að komast nær Haukunum en niður í 2 mörk. Að sama skapi náðu Haukar ekki að slíta HK-inga almennilega frá sér og var munurinn yfirleitt 4-5 mörk. Að lokum fór það þannig að Haukar unnu 31-27. Hjá Haukum var Daníel Máni Sigurgeirsson markahæstur með 10 mörk. Ari Dignus varði 16 skot. Hjá HK var Ingibert Snær Erlingsson markahæstur með 9 mörk. Patrekur Guðni Þorbergsson varði 11 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.