Aftureldingar stelpur ennþá taplausar
Raggi Óla

Grótta 2 og Afturelding mættust í dag í Grill 66 deild kvenna en leikið var á Seltjarnarnesi.

Aftureldingar sýndu strax í byrjun leiks að það var mikill getumunur á milli liðanna. Þær voru miklu betri allan fyrri hálfleikinn.

Mest náðu þær 7 marka forskoti. Hálfleikstölur voru síðan 15-21 fyrir gestina úr Mosó.

Í seinni hálfleik náðu Gróttu stelpur ekkert að saxa á forskot Aftureldingar. Afturelding bætti bara örlítið enn meira í og komst mest 11 mörkum yfir.

Lokatölur urðu 28-39 fyrir Aftureldingu og halda þær áfram uppteknum hætti. Eru þær taplausar á tímabili og stefna hraðbyri upp í efstu deild.

Hjá Aftureldingu var Katrín Helga Davíðsdóttir markahæst með 9 mörk. Markvarslan skilaði þeim 8 boltum.

Hjá Gróttu 2 var Elísabet Ása Einarsdóttir með 11 mörk. Soffía Helen Sölvadóttir varði 3 skot í markinu.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top