Aganefnd dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta hefur ákveðið að hvorki Skanderborg Aarhus né Fredericia verði refsað vegna alvarlegs atviks sem átti sér stað í viðureign liðanna 11. október síðastliðinn. Sjálfboðaliði við öryggisgæslu slasaðist í átökum við stuðningsmenn meðan á leiknum stóð og missti meðal annars meðvitund eftir að hafa fallið og slegið höfuðið. Atvikið varð til þess að stöðva þurfti leikinn í um 18 mínútur á meðan brugðist var við aðstæðum. Málið var tekið til skoðunar hjá aganefnd dönsku deildarinnar sem hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að ekki séu forsendur til að refsa félögunum vegna atviksins sjálfs. Skanderborg Aarhus, sem var heimalið leiksins, bar ábyrgð á öryggisgæslu og framkvæmd viðureignarinnar. Aganefndin taldi hins vegar ekki sýnt fram á að félagið hefði vanrækt skyldur sínar með þeim hætti að það kallaði á agaviðurlög. Fredericia slapp sömuleiðis við refsingu vegna málsins. Aganefndin benti á að stuðningsmannahópur Fredericia væri sjálfstætt félag með eigin stjórn og félagaskrá og starfaði því ekki undir beinni stjórn handknattleiksfélagsins. Þótt hvorugt félagið hafi verið refsað vegna atviksins fékk Skanderborg Aarhus áminningu fyrir notkun gjallarhorns í tengslum við leikinn. Notkun rafrænna gjallarhorna er bönnuð samkvæmt reglum dönsku deildarinnar og var heimaliðið jafnframt gert að greiða 4.136 danskar krónur í málskostnað. Málinu er þó ekki lokið hjá lögreglu því einn einstaklingur hefur enn réttarstöðu sakbornings vegna atviksins. Niðurstaða aganefndarinnar snýr eingöngu að ábyrgð handknattleiksfélaganna samkvæmt reglum deildarinnar en tekur ekki afstöðu til mögulegrar refsiábyrgðar einstaklingsins. Úrskurður aganefndarinnar er endanlegur og ekki hægt að áfrýja honum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.