Haukar geta jafnað 25 ára gamalt met í kvöld
J.L.Long

Haukar hafa farið á kostum í Olís-deild karla á tímabilinu og unnið alla átta leiki sína til þessa. Það þarf að fara rúm 25 ár aftur í tímann til að finna betri byrjun Hauka í efstu deild karla en Hafnarfjarðarliðið getur jafnað þann árangur í kvöld þegar liðið heimsækir KA í toppslag deildarinnar.

Haukar hafa verið á mikilli siglingu í upphafi tímabilsins og er eina liðið í Olís-deild karla sem hefur unnið alla leiki sína. Liðið er því með fullt hús stiga, 16 stig eftir átta umferðir.

Það þarf að fara allt aftur til tímabilsins 2000–2001 til að finna betri byrjun Hauka í efstu deild karla en þá unnu Haukar fyrstu níu leiki sína í Nissan-deildinni, eins og efsta deildin hét á þeim tíma.

Þrátt fyrir þessa frábæru byrjun fór heldur betur að halla undan fæti hjá Haukum eftir níunda sigurinn. Liðið vann aðeins sex af síðustu 13 leikjum sínum í deildarkeppninni og endaði að lokum í öðru sæti Nissan-deildarinnar á eftir KA, en tólf lið léku í efstu deild karla tímabilið 2000–2001.

Halldór Ingólfsson var markahæsti leikmaður Hauka á tímabilinu með 139 mörk.

Það er því skemmtileg tilviljun að Haukar geti einmitt jafnað árangur sinn frá tímabilinu 2000–2001 með sigri gegn KA í KA-heimilinu í kvöld, liðinu sem hafði betur í baráttunni um deildarmeistaratitilinn fyrir rúmum aldarfjórðungi.

Leikur KA og Hauka hefst klukkan 18:30 í kvöld og verður um sannkallaðan toppslag að ræða í 9. umferð Olís-deildarinnar. Umferðin hefst þó fyrr í dag þegar Valur og Afturelding mætast í öðrum stórleik á Hlíðarenda klukkan 15:30.

Það verður því nóg um að vera í Olís-deild karla í dag þar sem fjögur af sterkustu liðum deildarinnar verða í eldlínunni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top