Vandræði Löwen halda áfram
UWE ANSPACH / dpa Picture-Alliance via AFP

Tveir leikir áttu sér stað í dag er 11.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar var spiluð.

Fyrsti leikur dagsins var er Bietigheim tók á móti Erlangen í spennandi leik þar sem gestirnir höfðu betur, 34–35. Leikurinn var jafn framan af en Erlangen náði þriggja marka forskoti fyrir hálfleik, 20–23. Erlangen byrjaði síðari hálfleikinn betur og komst í 20–26. Bietigheim vann sig hins vegar aftur inn í leikinn og jafnaði í 30–30 þegar tíu mínútur voru eftir. Heimamenn komust síðan í 33–30 og virtust vera á leið með sigur. Erlangen svaraði með fjórum mörkum í röð og komst yfir, 33–34. Bietigheim jafnaði aftur en Bissel skoraði sigurmark Erlangen þegar rúm mínúta var eftir og tryggði gestunum 34–35 sigur. Viggó Kristjánsson skoraði 4 mörk og gaf 2 stoðsendingar og Andri Már Rúnarsson skoraði 3 mörk.

Hamburg tók á móti Rhein-Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeildinni þar sem heimamenn fóru með sigur af hólmi, 28–23. Hamburg byrjaði betur og komst í 5–3 en gestirnir náðu að snúa leiknum sér í hag og leiddu í hálfleik, 10–12. Síðari hálfleikurinn var jafn framan af og staðan var 16–16 eftir rúmar 43 mínútur. Þá tók Hamburg öll völd á vellinum og skoraði fjögur mörk í röð og komst í 20–16. Heimamenn héldu áfram að auka forskotið og komust í 24–18 þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir. Rhein-Neckar Löwen náði ekki að vinna upp muninn og Hamburg tryggði sér að lokum öruggan fimm marka sigur, 28–23. Haukur Þrastarsson skoraði 3 mörk og gaf 6 stoðsendingar.

Úrslit dagsins:

Bietigheim-Erlangan 34-35

Hamburg-Rhein Neckar Löwen 28-23

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top