Landsliðsmaðurinn, Haukur Þrastarson er meðal þeirra leikmanna sem gætu verið á förum frá þýska úrvalsdeildarfélaginu Rhein-Neckar Löwen næsta sumar. Þetta kemur fram í umfjöllun þýska miðilsins Bild um stöðu félagsins eftir miklar breytingar á stjórn þess. Rhein-Neckar Löwen hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og var Maik Machulla látinn taka pokann sinn sem þjálfari liðsins fyrr í mánuðinum. Michel Abt tók tímabundið við stjórninni og í vikunni var tilkynnt að Uwe Gensheimer, fyrrverandi stórstjarna félagsins, tæki við starfi íþróttastjóra. Gensheimer hefur því fengið það verkefni að endurskipuleggja íþróttastarf félagsins en mikil óvissa ríkir um framtíð nokkurra lykilmanna. Samkvæmt Bild er þýski landsliðsmarkvörðurinn David Späth orðaður við Kiel og línumaðurinn Aron Seesing sagður hafa samið við Magdeburg. Þá eru Haukur Þrastarson og sænski landsliðsmaðurinn Edwin Aspenbäck einnig nefndir sem leikmenn sem gætu yfirgefið félagið. Gensheimer viðurkennir að mikið verkefni sé fram undan. „Auðvitað veltir maður þessu fyrir sér. Það er líka starfið mitt,“ sagði Gensheimer í samtali við Bild þegar hann var spurður út í stöðuna á leikmannahópnum. Haukur framlengdi samning sinn við Rhein-Neckar Löwen í maí síðastliðnum til sumarsins 2028 og er því enn samningsbundinn félaginu næstu tvö tímabilin. Ekki hefur komið fram hvort önnur félög hafi sýnt honum áhuga eða hvort hann sjálfur vilji yfirgefa félagið. Rhein-Neckar Löwen tapaði fyrir Hamburg á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi, 28-23. Það var fjórða tap liðsins í röð. Haukur skoraði þrjú mörk og gaf fimm stoðsendingar í leiknum en Rhein-Neckar Löwen situr nú í 13. sæti deildarinnar með sjö stig. Gensheimer sat á varamannabekknum í leiknum að ósk Michels Abt. Ljóst er að miklar breytingar gætu orðið á leikmannahópi Rhein-Neckar Löwen á næstu misserum en enn sem komið er eru möguleg félagaskipti Hauks aðeins sögusagnir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.