Samkvæmt heimildum Handkastsins verður úrslitum leiks HK og KA/Þórs í Olís-deild kvenna í gærkvöldi breytt í 10-0 sigur KA/Þórs þar sem HK lék með leikmann sem var ekki skráður á leikskýrslu leiksins. KA/Þór vann leikinn í Kórnum í gærkvöldi, 27-24, eftir að staðan hafði verið jöfn í hálfleik, 11-11. Um var að ræða afar mikilvægan botnbaráttuslag en bæði lið voru með tvö stig fyrir leikinn. KA/ÞÓR STERKARI Á LOKAKAFLANUM GEGN HK Samkvæmt heimildum Handkastsins var KA/Þór tilkynnt eftir leikinn að úrslitunum yrði breytt í 10-0 sigur Akureyrarliðsins vegna mistaka við skráningu leikmanna HK. Tinna Ósk Gunnarsdóttir lék með HK í leiknum og skoraði fimm mörk, en samkvæmt opinberri leikskýrslu á vef HSÍ var hún ekki skráð til leiks. Í stað hennar var Tinna Dröfn Hauksdóttir skráð á leikskýrsluna og eru fimm mörkin skráð á hana. Tinna Dröfn var hins vegar hvergi sjáanleg í leikmannahópi HK í gærkvöldi. Svo virðist sem mannleg mistök hafi átt sér stað við gerð leikskýrslunnar og að röng Tinna hafi verið skráð til leiks. Þar sem KA/Þór vann leikinn mun breytingin ekki hafa áhrif á stigaskiptinguna. Akureyrarliðið fékk tvö stig fyrir sigurinn og er nú með fjögur stig á meðan HK situr áfram með tvö stig. Breytingin gæti hins vegar reynst KA/Þór afar mikilvæg þegar kemur að innbyrðisstöðu liðanna í lok tímabilsins. Í stað þess að hafa unnið leikinn með þremur mörkum, 27-24, fengi KA/Þór skráðan tíu marka sigur, 10-0. Það gæti haft verulega þýðingu ef liðin enda jöfn að stigum og innbyrðis úrslit ráða röð þeirra. Það hefði verið grátleg niðurstaða fyrir nýliða HK ef liðið hefði unnið leikinn í gær en mannleg mistök hefði kostað þau sigurinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.