Gaupi efast um að Löwen sleppi Hauki
Sævar Jónasson

Guðjón Guðmundsson, Gaupi, telur ólíklegt að Haukur Þrastarson yfirgefi Rhein-Neckar Löwen næsta sumar þrátt fyrir að hafa verið orðaður við þýsku stórliðin THW Kiel og VfL Gummersbach að undanförnu.

Rætt var um framtíð Hauks í nýjasta þætti Handkastsins en samkvæmt heimildum Handkastsins hafa bæði Kiel og Gummersbach sýnt íslenska landsliðsmanninum áhuga.

Gaupi telur að Haukur verði áfram hjá Rhein-Neckar Löwen og bendir á að félögin þyrftu væntanlega að greiða fyrir að losa hann undan samningi.

„Ég held nú að samningur Hauks við Rhein-Neckar Löwen muni halda. Ef þessi lið vilja fá hann þurfa þau væntanlega að kaupa hann út og það kostar pening. Það er gott fyrir Hauk að vera orðaður við þessi lið, bæði Kiel og Gummersbach. Hann hefur leikið vel í Þýskalandi og er á réttri vegferð.“

Gaupi telur jafnframt að Haukur verði áfram hjá Löwen þegar frændi hans, Elvar Örn Jónsson, gengur í raðir félagsins frá þýsku meisturunum í Magdeburg næsta sumar.

„En ég efast um að Rhein-Neckar Löwen sleppi honum. Ég held að Haukur verði áfram í Löwen þegar frændi hans kemur þangað,“ sagði Gaupi sem segir að Haukur hafi alla burði til þess að leika með stórliði Kiel sem sé í leit að leikmanni sem geti stýrt sóknarleik liðsins og tekið mikla ábyrgð.

„Kiel er að leita að leikmanni í þessa stöðu sem getur stýrt liðinu og tekið meiri ábyrgð. Haukur væri tilvalinn í það verkefni og þú kemst ekki mikið lengra en það að fá samning frá Kiel í Þýskalandi.“

Þrátt fyrir að telja Hauk nægilega góðan til að leika með Kiel stendur Gaupi fastur á því að hann verði áfram hjá Rhein-Neckar Löwen.

„Hann er alveg nægilega góður til þess en mín tilfinning er sú að hann verði áfram í Löwen,“ sagði Gaupi í nýjasta þætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top