Ísland valtaði yfir Úkraínu – Ómar Ingi náði stórum áfanga
Johan NILSSON / TT News Agency / AFP

Strákarnir okkar hófu undankeppni EM 2028 með sannfærandi 22 marka sigri á Úkraínu í Laugardalshöll í kvöld. Lokatölur urðu 48–26 eftir að íslenska liðið hafði leitt með fjórtán mörkum í hálfleik, 23–9.

Íslenska liðið tók strax öll völd á vellinum og komst í 2–0 áður en Úkraínumenn skoruðu sitt fyrsta mark. Íslendingar héldu áfram að auka forskotið jafnt og þétt og voru komnir í 9–3 þegar rúmar tíu mínútur voru liðnar af leiknum.

Varnarleikur íslenska liðsins var öflugur í fyrri hálfleik og Viktor Gísli Hallgrímsson stóð vel fyrir sínu í markinu. Sóknarleikurinn gekk sömuleiðis vel og íslenska liðið skoraði 23 mörk í fyrri hálfleik gegn aðeins níu mörkum Úkraínumanna.

Staðan í hálfleik var 23–9 og ljóst að róðurinn yrði þungur fyrir gestina í síðari hálfleik.

Ómar Ingi Magnússon náði stórum áfanga í leiknum þegar hann skoraði sitt 400. landsliðsmark fyrir Íslands hönd. Ómar Ingi var jafnframt einn af fjórum markahæstu leikmönnum íslenska liðsins með sex mörk úr átta skotum. Óðinn Þór Ríkharðsson, Reynir Þór Stefánsson og Bjarki Már Elísson skoruðu sömuleiðis sex mörk hver en Bjarki nýtti öll sex skotin sín.

Reynir Þór kom með sterka innkomu inn í lið Íslands í seinni hálfleik á meðan Bjarki Már hóf leikinn í vinstra horninu og var funheitur.

Íslenska liðið hélt áfram að bæta við mörkum í síðari hálfleik og komst meðal annars í 27–13 snemma í hálfleiknum. Munurinn hélt áfram að aukast og þegar skammt var eftir var Ísland komið með 22 marka forskot, 46–24.

Alls komust 15 íslenskir leikmenn á blað í leiknum, þar á meðal markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson sem skoraði eitt mark. Viktor Gísli Hallgrímsson varði sjö skot af þeim 16 sem hann fékk á sig og var með 44% markvörslu en hann var eini leikmaður Íslands sem skoraði ekki í leiknum. Björgvin Páll Gústavsson varði sex skot og endaði með 26% markvörslu.

Dmytro Artemenko var markahæstur Úkraínumanna með átta mörk en Ihor Turchenko skoraði sex.

Íslenska liðið hefur því undankeppnina með afar sannfærandi hætti og tekur með sér góðan sigur inn í næsta verkefni, sem er útileikur gegn Eistlandi á sunnudaginn.

Mörk Íslands: Ómar Ingi Magnússon 6, Óðinn Þór Ríkharðsson 6, Reynir Þór Stefánsson 6, Bjarki Már Elísson 6, Orri Freyr Þorkelsson 4, Kristján Örn Kristjánsson 3, Janus Daði Smárason 3, Gísli Þorgeir Kristjánsson 3, Elliði Snær Viðarsson 2, Arnar Freyr Arnarsson 2, Sigvaldi Björn Guðjónsson 2, Jón Bjarni Ólafsson 2, Haukur Þrastarson 1, Björgvin Páll Gústavsson 1 og Elvar Örn Jónsson 1.

Markvarsla Íslands: Viktor Gísli Hallgrímsson 7 varin skot (44%) og Björgvin Páll Gústavsson 6 varin skot (26%).

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top