Stórsigur hjá Savehof – Jafntefli í Þýskalandi
Guðmundur Svansson

Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði tvö mörk þegar Sävehof vann sannfærandi 33-15 sigur á Skuru í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Sävehof hafði mikla yfirburði og var með ellefu marka forskot í hálfleik, 17-6. Heimakonur héldu áfram að bæta við forskotið eftir hlé og unnu að lokum átján marka sigur.

Í Noregi mátti Larvik þola sitt fyrsta tap í deildinni á tímabilinu þegar liðið heimsótti Sola. Lokatölur urðu 38-29 fyrir heimakonur eftir að staðan hafði verið 20-16 í hálfleik.

Dana Björg Guðmundsdóttir var ekki með Larvik í leiknum en hún glímir við meiðsli.

Larvik hafði unnið fyrstu átta deildarleiki sína en réð illa við Sola. Camilla Herrem var markahæst hjá sigurliðinu með tíu mörk en Maja Furu Sæteren skoraði sjö fyrir Larvik.

Í Þýskalandi gerði Blomberg-Lippe 29-29 jafntefli við Bensheim-Auerbach eftir að hafa verið 15-14 yfir í hálfleik.

Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Haraldsdóttir skoruðu eitt mark hvor fyrir Blomberg-Lippe.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top