Guðrún Ásta sneri inn sigurmarkinu
Þorgils G.

Guðrún Ásta Magnúsdóttir tryggði Val 2 dramatískan 27–26 sigur á Fjölni í Grill 66-deild kvenna. Þegar örfáar sekúndur voru til leiksloka sneri hún boltanum fram hjá Söru Xiao Reykdal í marki Fjölnis.

Fjölnir náði mest fimm marka forskoti í fyrri hálfleik og leiddi 15–13 í leikhléi. Valskonur sneru taflinu við í síðari hálfleik og komust í 20–18 en Fjölnir tók forystuna á ný og var yfir, 25–22, þegar rúmar fimm mínútur voru eftir.

Guðrún Ásta minnkaði muninn í eitt mark með tveimur mörkum í röð áður en Alba Mist Gunnarsdóttir jafnaði í 25–25. Stefanía Ósk Engilbertsdóttir kom Fjölni aftur yfir en Alba Mist jafnaði á ný í 26–26 þegar tæp ein og hálf mínúta var eftir. Guðrún Ásta átti svo síðasta orðið með sínu fimmta marki í leiknum.

Katla Margrét Óskarsdóttir stóð í marki Vals 2 en tók einnig þátt í sóknarleik liðsins í markmannstreyjunni og skoraði eitt mark. Laufey Helga Óskarsdóttir var markahæst hjá Val 2 með sex mörk en Sara Kristín Pedersen skoraði ellefu fyrir Fjölni.

Valur 2 er í fjórða sæti deildarinnar með átta stig eftir átta leiki. Fjölnir er í sjötta sæti með fimm stig eftir jafnmarga leiki.

Valur 2 – Fjölnir 27–26 (13–15)

Mörk Vals 2
Laufey Helga Óskarsdóttir 6, Guðrún Ásta Magnúsdóttir 5, Eva Steinsen Jónsdóttir 4, Eyrún Anna Arnarsdóttir 4, Anna Margrét Alfreðsdóttir 3, Alba Mist Gunnarsdóttir 2, Anja Gyða Vilhelmsen 1, Hekla Hrund Andradóttir 1, Katla Margrét Óskarsdóttir 1.

Mörk Fjölnis
Sara Kristín Pedersen 11, Berglind Benediktsdóttir 4, Signý Harðardóttir 4, Stefanía Ósk Engilbertsdóttir 4, Sólveig Ása Brynjarsdóttir 2, Hildur Sóley Káradóttir 1.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top