Jón Bjarni Ólafsson, línumaður FH, segir stefnuna setta á að spila erlendis og kveðst tilbúinn að skoða það ef rétta félagið hefur samband. „Ef það kemur rétt lið sem biður um mann þá er ég alveg tilbúinn til að skoða það,“ sagði Jón Bjarni í samtali við Handkastið, spurður hvort atvinnumennska erlendis væri á stefnuskránni. Jón Bjarni lék sinn fyrsta landsleik á heimavelli á miðvikudag þegar Ísland vann Úkraínu með 22 mörkum í undankeppni EM 2028. Hann hafði áður leikið tvo vináttulandsleiki gegn Egyptalandi í Kaíró fyrr á árinu. Jón Bjarni er með samning við FH til ársins 2028 en hann hefur skorað 28 mörk fyrir FH í Olís-deildinni í ár og er með 82% skotnýtingu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.