Pytlick vill losna við sjö á móti sex
Philipp Szyza / AFP

Danski landsliðsmaðurinn Simon Pytlick vill að sjö á móti sex reglan í handbolta verði afnumin. Alþjóða handknattleikssambandið (IHF) hefur regluna til skoðunar og kemur til greina að afnema möguleikann á að spila með sjö útileikmenn í sókn.

Sjö á móti sex reglan hefur verið mikið til umræðu í handboltaheiminum frá því hún var tekin upp árið 2016.

Í vetur mun æðsta ráð Alþjóða handknattleikssambandsins taka regluna til skoðunar á ný og meðal þess sem kemur til greina er að afnema hana alfarið.

Skiptar skoðanir eru um málið innan danska landsliðsins en Simon Pytlick, leikmaður Flensburg-Handewitt, er hlynntur því að reglan verði afnumin.

Í samtali við TV 2 SPORT segir Pytlick að hann sjái ekkert því til fyrirstöðu að hætta að leyfa sjö útileikmenn í sókn.

„Ég held að ef maður fjarlægir regluna þurfi menn að finna nýjar lausnir og hugmyndir í sex á móti sex. Ég sé enga ástæðu fyrir því að það væri slæmt að afnema hana,“ sagði Pytlick.

Hann segir það einnig geta verið pirrandi að mæta liðum sem spila sjö á móti sex, sérstaklega vegna þess hvernig sóknir geta endað.

„Mér finnst stundum svolítið pirrandi að spila á móti þessu því oft felast skyndisóknirnar í einni fljótlegri sendingu yfir völlinn og svo þarf maður bara að skjóta í autt mark. Þetta er líka leiðinlegt þegar maður er inni á vellinum.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top