Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu var ánægður með frammistöðu sinna manna eftir tíu marka útisigur gegn Finnlandi 35–25 í undankeppni Evrópumótsins 2028 sem fram fór á laugardaginn. Króatar höfðu betur 35-25. Króatar hafa farið afar vel af stað í undankeppninni en liðið vann átján marka sigur á Litháen, 46–28, í fyrsta leik sínum á miðvikudaginn. Þrátt fyrir annan sannfærandi sigur í röð var Dagur ekki fullkomlega sáttur við allt í leik sinna manna gegn Finnum. Dagur sagði eftir leikinn að liðið hefði gert of mörg mistök þrátt fyrir að hafa að öðru leyti sýnt góða frammistöðu. „Þetta var góður leikur hjá okkur. Við höfum nú leikið tvo leiki í röð og þurftum að halda einbeitingunni. Við gerðum kannski of mörg tæknimistök en þegar á heildina er litið er ég ánægður með bæði úrslitin og frammistöðuna,“ sagði Dagur í samtali við EHF eftir leikinn. Króatar náðu snemma góðum tökum á leiknum og gátu leyft sér að dreifa álaginu á leikmenn þegar leið á viðureignina. Króatía hefur nú skorað 81 mark í fyrstu tveimur leikjum sínum í undankeppninni og unnið þá með samtals 28 marka mun. Lærisveinar Dags eru því komnir með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar og hafa tekið stórt skref í átt að sæti á Evrópumótinu 2028. Reynir Stefánsson var eftirlitsmaður leiksins í Finnlandi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.