Tveir leikmenn fögnuðu stórum áföngum í sigrinum í Tallinn
Sævar Jónasson

Tveir leikmenn íslenska karlalandsliðsins náðu stórum áföngum á landsliðs ferli sínum í gær þegar Ísland vann öruggan 39-26 sigur á Eistlandi í undankeppni Evrópumótsins 2028 í Tallinn.

Þeir Elvar Örn Jónsson leikmaður Magdeburg og Björgvin Páll Gústavsson leikmaður Vals léku báðir tímamótaleiki fyrir íslenska landsliðið en Elvar Örn lék sinn 100. landsleik á meðan Björgvin Páll lék sinn 300. landsleik.

Elvar Örn hefur verið mikilvægur hlekkur í íslenska landsliðinu undanfarin ár, bæði í vörn og sókn. Hann fagnaði tímamótunum með því að skora tvö mörk í öruggum sigri Íslands.

Björgvin Páll hefur um árabil verið einn af lykilmönnum íslenska landsliðsins og er einn leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi. Björgvin Páll varði fimm skot í leiknum í dag og endaði með 24% markvörslu.

Íslenska liðið hefur þar með unnið báða leiki sína í undankeppni EM 2028 eftir stórsigur á Úkraínu í Laugardalshöll á miðvikudagskvöldið og öruggan sigur á Eistlandi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top