Toppliðið styrkir sig með tveimur leikmönnum

Akureyringurinn Auður Brynja Sölvadóttir er búin að fá félagaskipti yfir í Aftureldingu auk þess hefur norski markvörðurinn Bertine Hansen gengið í raðir félagsins.

Afturelding trónir á toppnum í Grill 66 deildinni með átta sigurleiki í röð. Rætt var um komu Auðar og Bertine í Aftureldingu í nýjasta þætti Handkastsins.

Auður Brynja hefur verið að æfa með Aftureldingu að undanförnu og léku þær báðar sinn fyrsta leik fyrir Aftureldingu í gær þegar liðið hafði betur gegn HK 2 í hörkuleik.

Auður hafði gefið það út síðastliðið vor að hún væri hætt handboltaiðkun og kom í viðtal hér á síðunni þess efnis. En nú er ljóst að þessi 31 árs Akureyringur sem er sterkur varnarmaður og öflug vinstri skytta er búin að taka fram skóna á nýjan leik.

Hjá Aftureldingu hittir hún fyrir fyrrum samherja sína hjá Víking á síðasta keppnistímabili, þær Mattý Rós Birgisdóttur og Andreu Ósk Þorkelsdóttur. Að ógleymdum þjálfaranum Sebastian Alexanderssyni.

Bertine Hansen kom inná í fyrri hálfleik í leiknum í gær og varði alls ellefu skot í leiknum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top