Svíar skoruðu 50 mörk og Færeyingar sóttu stig til Svartfjallalands
Tyrkneska sambandið

Þrettán leikir fóru fram í 2. umferð undankeppni EM karla í dag. Svíar settu met með 50 mörkum gegn Didier Dinart og lærisveinum hans í Lúxemborg.

Ísland og Serbía unnu bæði sinn annan leik gegn Eistlandi og Úkraínu og Færeyingar gerðu jafntefli við Svartfellinga í Podgorica. Hér að neðan má sjá yfirferð yfir alla þrettán leikina sem fóru fram í dag.

1. riðill

Litháen – Holland 27–41 (13–19)
Holland skoraði 22 mörk eftir hlé og vann fjórtán marka útisigur á lærisveinum Carlos Martin Santos í Litháen. Spánverjinn sem þjálfaði Hörð og Selfoss á sínum tíma tók við Litháen á dögunum og fékk lítinn undirbúning fyrir verkefnið .Hollendingar hafa unnið báða leiki sína í undankeppninni.  Mindaugas Dumcius var markahæstur í leiknum með tólf mörk. Dani Baijens og Niels Versteijnen skoruðu fimm mörk hvor fyrir Hollendinga.

2. riðill

Tyrkland – Noregur 31–45 (15–22)
Norðmenn skoruðu 22 mörk fyrir hlé og bættu 23 við í síðari hálfleik. Sjö marka forskot í leikhléi varð að fjórtán marka sigri, þeim öðrum hjá Noregi í riðlinum. Tobias Cvetko var markahæstur með 11 mörk en August Pedersen var markahæstur Norðmanna með níu mörk.

Georgía – Austurríki 23–35 (9–17)
Austurríkismenn héldu Georgíumönnum í níu mörkum í fyrri hálfleik og leiddu með átta í leikhléi. Þeir bættu fjórum mörkum við forskotið eftir hlé og eru með fullt hús stiga líkt og Norðmenn. Giorgi Tskhovrebadze var markahæstur með tólf mörk úr 21 skoti.

3. riðill

Úkraína – Serbía 30–41 (16–19)
Serbar voru þremur mörkum yfir í hálfleik í Prešov en skoruðu 22 mörk eftir hlé og unnu með ellefu. Milan Kojadinović skoraði níu mörk fyrir Serbíu og Ihor Turchenko tíu fyrir Úkraínu.

Eistland – Ísland 26–39 (10–23)
Ísland lagði grunninn að sigrinum í Tallinn í fyrri hálfleik og leiddi með þrettán mörkum í leikhléi. Liðin skoruðu sextán mörk hvort eftir hlé. Ísland og Serbía eru bæði með fjögur stig og mætast í næstu umferð í mars.  Bjarki Már Elísson var markahæstur Íslendinga með tíu mörk.

4. riðill

Kósovó – Ungverjaland 20–34 (12–17)
Ungverjar leiddu með fimm mörkum í hálfleik en juku forskotið í fjórtán eftir hlé. Þeir skoruðu sautján mörk í hvorum hálfleik og hafa unnið báða leiki sína. Bence Krakovszki var markahæstur með tíu mörk. Bence er 24 ára, leikmaður Tatabánya sem leikur með Val í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Svartfjallaland – Færeyjar 34–34 (18–17)
Færeyingar sóttu stig til Podgorica eftir að hafa verið marki undir í leikhléi. Elias Ellefsen á Skipagøtu var markahæstur hjá Færeyjum með átta mörk. Jafnteflið þýðir að Færeyjar eru með þrjú stig eftir tvo leiki. Óli Mittún og Vilhelm Poulsen fyrrum leikmaður Fram skoruðu sjö mörk hvor. Bjarni í Selvindi skoraði tvö mörk.

5. riðill

Bosnía og Hersegóvína – Tékkland 19–32 (7–13)
Tékkar fengu aðeins sjö mörk á sig fyrir hlé og leiddu þá með sex. Þeir skoruðu nítján mörk í síðari hálfleik og unnu þrettán marka sigur. 

6. riðill

Lettland – Frakkland 29–44 (15–25)
Frakkar voru komnir með tíu marka forskot í leikhléi og bættu fimm mörkum við muninn í síðari hálfleik. Þetta var annar sigur þeirra í riðlinum eftir sigur á Rúmeníu í fyrstu umferð. 

Rúmenía – Pólland 28–30
Pólverjar fylgdu sigrinum á Lettlandi eftir með tveggja marka útisigri á Rúmeníu. Pólland og Frakkland eru með fjögur stig hvort og mætast í næstu umferð í mars. 

7. riðill

Slóvakía – Þýskaland 27–39 (12–24)
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar skoruðu tvöfalt fleiri mörk en Slóvakar í fyrri hálfleik og héldu tólf marka forskotinu út leikinn. Lukas Zerbe var markahæstur Þjóðverja með sjö mörk. Þýskaland hefur unnið tvo leiki af tveimur. 

8. riðill

Lúxemborg – Svíþjóð 20–50 (10–26)
Svíar skoruðu í fyrsta sinn 50 mörk í karlalandsleik og bættu fyrra metið um eitt mark. Ludvig Hallbäck skoraði átta mörk, þeir Emil Mellegård og Axel Månsson sex hvor og Samuel Itua Etute var markahæstur hjá Lúxemborg með átta.

Grikkland – Norður-Makedónía 29–24 (16–9)
Grikkir náðu sjö marka forskoti í fyrri hálfleik og lögðu þar grunninn að sínum fyrsta sigri í riðlinum. Norður-Makedónía vann síðari hálfleikinn 15–13 en komst fimm mörkum frá Grikkjum í lokin. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top