Þegar við fundum taktinn gekk allt samkvæmt áætlun
Eistneska sambandið

Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður Íslands og leikmaður PSG var ánægður með frammistöðu íslenska liðsins eftir öruggan 39-26 sigur gegn Eistlandi í undankeppni Evrópumótsins 2028 í Tallinn í gær.

Bjarki Már átti stórleik í íslenska liðinu og skoraði meðal annars tíu mörk í fyrri hálfleik. Hann ræddi við Handknattleikssamband Evrópu (EHF) eftir leikinn og viðurkenndi að íslenska liðið hefði farið heldur rólega af stað.

„Við byrjuðum í raun frekar illa en þegar við fundum taktinn héldum við okkur við leikplanið og allt gekk nákvæmlega eins og við höfðum lagt upp með,“ sagði Bjarki Már í samtali við EHF.

Íslenska liðið lauk þar með fyrri tveimur leikjum sínum í undankeppni EM 2028 með tveimur öruggum sigrum, en Ísland hafði áður unnið Úkraínu með 22 marka mun í Laugardalshöll síðastliðinn miðvikudag. Bjarki Már hafði einnig orð á frammistöðu eistneska liðsins og telur að þar sé að finna efnilega leikmenn þótt liðið eigi enn nokkuð í land með að ná þeim bestu.

„Eistland er líka með nokkra hæfileikaríka leikmenn. Þeir eiga enn langt í land en allt er mögulegt,“ sagði Bjarki Már að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top