Witzke orðinn liðsfélagi Einars Þorsteins
Michael Hundt / dpa Picture-Alliance via AFP

Þýski landsliðsmaðurinn Luca Witzke er á förum frá SG Flensburg-Handewitt eftir stutta viðveru hjá félaginu. Witzke hefur komist að samkomulagi við Flensburg um að rifta samningi sínum og gengur til liðs við HSV Hamburg út yfirstandandi tímabil.

Handkastið greindi frá því í síðustu viku að Witzke væri í viðræðum við Hamburg en nú hafa félagaskiptin gengið í gegn samkvæmt þýskum fjölmiðlum.

Witzke, sem er 27 ára gamall, gekk til liðs við Flensburg frá Leipzig sumarið 2025 en hefur átt erfitt uppdráttar vegna meiðsla. Hann gekkst undir aðgerð á öxl og var frá keppni í ellefu mánuði áður en hann sneri aftur á völlinn í október.

Þrátt fyrir að vera orðinn leikfær hefur Witzke átt erfitt með að vinna sér fast sæti í leikmannahópi Flensburg undir stjórn Aleš Pajovič.

Hamburg hefur hins vegar verið í leit að styrkingu í skyttustöðunni eftir að Moritz Sauter sleit krossband í september og verður frá keppni um langt skeið.

Witzke er því ætlað að fylla það skarð sem Sauter skilur eftir sig og styrkja sóknarleik Hamburg á seinni hluta tímabilsins.

Þýski landsliðsmaðurinn hefur leikið 51 landsleik fyrir Þýskaland og var í þýska landsliðshópnum sem vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í París árið 2024. Witzke hafði verið samningsbundinn Flensburg til ársins 2028 en dvöl hans hjá félaginu virðist nú vera á enda eftir rúmt eitt tímabil.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top