Metfjöldi mætti á leik í Sviss – Portúgalar stálu stigi
Bo Amstrup /AFP

Mikil dramatík var í 2. umferð EHF EURO Cup í gær þar sem Portúgalar tryggðu sér jafntefli gegn Spánverjum með marki á lokasekúndunum. Á sama tíma var sett nýtt áhorfendamet á handboltaleik í Sviss þegar Danir heimsóttu Svisslendinga til Zürich.

Spánverjar og Portúgalar gerðu 37–37 jafntefli í æsispennandi nágrannaslag þar sem heimamenn virtust lengi vel ætla að fara með sigur af hólmi. Spánverjar leiddu með einu marki í hálfleik, 18–17, en náðu fimm marka forystu snemma í síðari hálfleik þegar staðan varð 24–19.

Portúgalar, sem léku án Martim Costa neituðu hins vegar að gefast upp og unnu sig jafnt og þétt aftur inn í leikinn.

Þegar skammt var eftir komust Spánverjar í 37–34 og virtust vera búnir að tryggja sér sigurinn. Portúgalar skoruðu hins vegar tvö mörk í röð og minnkuðu muninn í eitt mark áður en Ricardo Brandão jafnaði metin, 37–37, þegar aðeins fjórtán sekúndur voru eftir.

Ian Tarrafeta fékk síðasta tækifæri Spánverja til að tryggja sigurinn en skot hans geigaði og því skiptu liðin með sér stigunum. Jan Gurri var markahæstur Spánverja með sjö mörk en António Areia, Francisco Costa og Luís Frade skoruðu sex mörk hver fyrir Portúgal.

Á sama tíma fór fram sögulegur landsleikur í Zürich þar sem 11.600 áhorfendur mættu á viðureign Sviss og Danmerkur. Aldrei áður höfðu jafn margir áhorfendur mætt á handboltaleik í Sviss en heimamenn þurftu engu að síður að sætta sig við níu marka tap, 24–33, gegn ríkjandi Evrópumeisturum.

Danir byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust í 3–0 áður en Svisslendingar náðu að jafna metin í 7–7. Danir tóku hins vegar aftur frumkvæðið og leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 13–9.

Í síðari hálfleik náðu Danir mest tíu marka forystu og sigldu að lokum öruggum sigri í höfn.

Kevin Møller átti stórleik í marki Dana og varði tuttugu skot en Simon Pytlick var markahæstur með tíu mörk. Mathias Gidsel skoraði sjö mörk.

Andy Schmid, landsliðsþjálfari Sviss, var þrátt fyrir tapið nokkuð ánægður með frammistöðu sinna manna gegn einu sterkasta landsliði heims.

„Við byrjuðum ekki vel og spiluðum allt of hægt. Markvörðurinn okkar hélt okkur inni í leiknum á þeim kafla. Við náðum síðan að spila af meiri krafti og hugrekki en byrjuðum síðari hálfleikinn aftur mjög illa,“ sagði Schmid eftir leikinn.

Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari Danmerkur var hins vegar sérstaklega ánægður með varnarleikinn og frammistöðu Kevin Møller í síðari hálfleik. Þetta var fyrsti sigur Dana í EHF EURO Cup eftir að liðið gerði jafntefli gegn Spánverjum í fyrstu umferðinni.

Danmörk, Spánn, Portúgal og Sviss taka þátt í EHF EURO Cup þar sem þjóðirnar fjórar eru þegar komnar með sæti á Evrópumótinu 2028. Spánn, Portúgal og Sviss halda mótið sameiginlega en Danir eru ríkjandi Evrópumeistarar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top