Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður Íslands og leikmaður HC Erlangen í Þýskalandi glímir við meiðsli á hné og var af þeim sökum ekki í leikmannahópi íslenska landsliðsins sem mætti Eistlandi í undankeppni EM 2028 í Tallinn í gær. Í samtali við Handkastið staðfesti Viggó að hann væri meiddur á hné og að hann væri á leið í myndatöku í dag, mánudag, til að fá nánari upplýsingar um meiðslin. Ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðslin eru eða hvort þau muni halda honum frá keppni næstu vikurnar. Vonast er til að myndatakan varpi skýrara ljósi á stöðuna. Íslenska landsliðið hafði betur gegn Eistlandi í gær, 39-26, og tryggði sér þar með sinn annan sigur í undankeppni EM 2028 eftir stórsigur gegn Úkraínu í Laugardalshöll síðastliðinn miðvikudag í þeim leik tók Viggó út leikbann. Viggó lék ekkert með Erlangen undir lok síðasta tímabil og var lengi frá vegna meiðsla. Hann hafði hinsvegar snúið aftur á völlinn og leikið með HC Erlangen síðustu vikur. Er þetta því mikið áhyggjuefni fyrir bæði landsliðsmanninn og Erlangen.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.