Þurfum við ekki einhverntímann að klippa á naflastrenginn?
Sævar Jónasson

Markmannsstaða íslenska landsliðsins var til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins, ekki í fyrsta og ekki í síðasta sinn þar sem Stymmi klippari velti því fyrir sér hvort ekki hefði verið rétt að gefa Jóni Þórarni Þorsteinssyni tækifæri í öðrum hvorum landsleiknum gegn Úkraínu og Eistlandi.

Ísland vann báða leiki sína örugglega í undankeppni EM 2028, fyrst 39-17 gegn Úkraínu og síðan 39-26 gegn Eistlandi. Björgvin Páll Gústavsson náði þeim merka áfanga að leika sinn 300. landsleik í síðari leiknum.

Stymmi klippari tók fram að gagnrýni hans beindist ekki að Björgvini Páli heldur þeirri ákvörðun að nýta ekki verkefnið til að gefa öðrum markverði tækifæri.

„Ég þarf að ræða eitt. Björgvin Páll – 300 landsleikir – frábært. Þetta snýr ekkert að Bjögga. Nú erum við í verkefni sem var tiltölulega auðvelt. Hefði ekki verið lag að setja Jón Þórarinn í hóp í öðrum hvorum leiknum? Hvenær ætlum við að stækka púlíuna? Erum við að bíða eftir að það komi markmaður sem verður tilbúinn í landsliðið?“ sagði Stymmi klippari.

Björn Ingi Jónsson benti á að það væri einnig dýrmæt reynsla fyrir unga markverði að taka þátt í landsliðsæfingum og rifjaði upp hversu langan tíma það tók Viktor Gísla Hallgrímsson að festa sig í sessi með íslenska landsliðinu.

„Er ekki frábær reynsla að fá að vera með á æfingunum? En að öllu gríni slepptu. Eins og með Viktor Gísla sem er okkar markvörður númer eitt í dag, hann var mjög lengi að ná því leveli með landsliðinu. Þetta tekur tíma,“ sagði Björn Ingi.

Stymmi tók undir að það tæki tíma að þróa landsliðsmarkverði og taldi það einmitt vera ástæðu til að byrja fyrr að gefa nýjum mönnum tækifæri.

„Það tók Viktor Gísla nokkur ár að vera góður með landsliðinu. Það er ekkert mikið af landsleikjum í boði og næstu landsleikir eru gegn Kúwait í aðdraganda lokamóts. Jón Þórarinn á eftir að spila sex leiki í Olís-deildinni þangað til, hann verður ekkert tilbúnari landsliðsmarkvörður á þeim tíma.“

Stymmi ítrekaði að umræðan snerist ekki um frammistöðu Björgvins Páls heldur framtíðarsýn íslenska landsliðsins í markmannsstöðunni.

„Þetta snýr ekkert að Björgvini Páli en verðum við ekki einhvern tímann að klippa naflastrenginn og prófa einhvern annan? Björgvin Páll er þekkt stærð og það vita það allir,“ sagði Stymmi klippari.

Davíð Már Kristinsson tók undir sjónarmið Stymma og benti á að Jón Þórarinn hefði unnið mikið fyrir því að koma sér í þá stöðu sem hann er í í dag.

„Jón Þórarinn hefur líka lagt gríðarlega mikið á sig síðustu ár og er að uppskera. Ég tek undir þetta og það hefði verið gaman að fá að sjá hann fá nokkrar mínútur,“ sagði Davíð Már.

Umræðan í Handkastinu snerist því fyrst og fremst um hvort Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari hefði átt að nýta leikina tvo til að auka reynslu fleiri markvarða, sérstaklega í ljósi þess að tækifærin til að prófa nýja leikmenn í landsleikjum eru takmörkuð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top