Claus Leth Mogensen og Simon Olsen landsliðsþjálfarar færeyska kvennalandsliðsins hafa valið þá 16 leikmenn sem munu leika fyrir Færeyjar á Evrópumótinu í desember. Joan Rúnadóttir Johannesen og Agatha Kjærbæk Djurhuus eru í hópnum en þær leika báðar með KA/Þór í Olís-deild kvenna. Færeyingar undirbúa sig nú fyrir Evrópumótið sem hefst 5. desember og fer fram í Póllandi, Rúmeníu, Tékklandi, Slóvakíu og Tyrklandi. Færeyska liðið kemur saman til æfinga í Þórshöfn mánudaginn 23. nóvember. Tveimur dögum síðar heldur liðið til Þrándheims í Noregi þar sem það mætir Noregi 26. nóvember og Danmörku 28. nóvember í tveimur undirbúningsleikjum. Að þeim loknum snýr liðið aftur til Færeyja áður en haldið verður til Póllands 3. desember. Færeyjar eru í riðli með Úkraínu, Frakklandi og Póllandi og hefja leik gegn Úkraínu laugardaginn 5. desember. Markverðir: Rakul Wardum – Skanderborg Håndbold (Danmörk) Útileikmenn: Jana Mittún – Viborg HK (Danmörk) Hornamenn: Brynhild Pálsdóttir – BK Ydun (Danmörk) Línumenn: Pernille Brandenborg – CSM București (Rúmenía) Laugardagur 5. desember kl. 19:30 – Færeyjar – Úkraína Mánudagur 7. desember kl. 19:30 – Frakkland – Færeyjar Miðvikudagur 9. desember kl. 17:00 – Færeyjar – PóllandEM-hópur Færeyja
Annika Fríðheim Petersen – Gniezno (Pólland)
Maria Pálsdóttir Nólsoy – København Håndbold (Danmörk)
Marita Mortensen – Nykøbing Falster (Danmörk)
Fríða Nolsøe Olsen – BK Ydun (Danmörk)
Ró Reginsdóttir – Neistin (Færeyjar)
Anna Elisabeth Halsdóttir Weyhe – H71 (Færeyjar)
Lív Bentsdóttir Zachariasen – Ajax København (Danmörk)
Joan Rúnadóttir Johannesen – KA/Þór (Ísland)
Rannvá Olsen – Ejstrup/Hærvejen (Danmörk)
Christina Turiðardóttir Arge – Hadsten Håndbold (Danmörk)
Vár Bentsdóttir Zachariasen – Ajax København (Danmörk)
Agatha Kjærbæk Djurhuus – KA/Þór (Ísland)Leikir Færeyja á EM

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.