Haukar eru komnir í 16-liða úrslit Evrópubikars kvenna í handbolta þrátt fyrir 27–24 tap gegn Levalea Nikšić frá Svartfjallalandi á Ásvöllum í kvöld. Hafnfirðingar unnu fyrri leikinn 42–24 í gær og einvígið því 66–51 samanlagt. Haukar byrjuðu betur og komust í 7–2 eftir rúmar 13 mínútur. Levalea svaraði með fimm mörkum í röð og jafnaði í 7–7 en Haukar náðu aftur undirtökunum og leiddu 13–9 í hálfleik. Rakel Guðmundsdóttir skoraði sex af þrettán mörkum Hauka í fyrri hálfleik. Sonja Sigsteinsdóttir kom Haukum í 22–21 þegar rúmar átta mínútur voru eftir. Levalea skoraði þá fjögur mörk í röð og komst í 25–22. Alexandra Arnarsdóttir skoraði síðasta mark leiksins þegar fjórar sekúndur voru eftir og minnkaði muninn í 27–24. Jóhanna Sigurðardóttir var markahæst hjá Haukum með sjö mörk og Sara Helgadóttir varði sjö skot. Dregið verður í 16-liða úrslitin í næstu viku. Mörk Hauka Jóhanna Sigurðardóttir 7
Rakel Guðmundsdóttir 6
Aníta Eik Jónsdóttir 4
Sonja Sigsteinsdóttir 2
Sara Marie Odden 2
Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 1
Alexandra Arnarsdóttir 1
Berta Rut Harðardóttir 1

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.