Serbíumeistarar Partizan standa frammi fyrir óvissu um framhaldið eftir að formaður félagsins sagði af sér, stjórnin var leyst frá störfum og Raúl González þjálfari liðsins lét af störfum. Þá greinir Handball Planet frá því að öllum leikmönnum Partizan sé frjálst að leita sér að nýju félagi. Miljan Žugić sagði af sér formennsku á mánudagskvöld og í kjölfarið var stjórnin leyst frá störfum samkvæmt samþykktum félagsins. Žugić sagði að félagið gæti ekki tryggt fjármögnun áframhaldandi rekstrar eftir að bankareikningur þess var frystur. Handball Planet rekur fjármögnunarvandann til pólitískra breytinga í Serbíu. Félagið hefur 30 daga til að boða fund þar sem nýr formaður og stjórn verða skipuð. González tók við Partizan í sumar en ákvað að rifta samningi sínum í kjölfar stjórnarskiptanna. Hann verður áfram landsliðsþjálfari Serbíu um sinn. Marko Pavlović, sem var aðstoðarmaður Spánverjans, stýrir Partizan út tímabilið samkvæmt tilkynningu félagsins. Miloš Kos hefur þegar fundið sér nýtt félag. Samkvæmt Handball Planet gengur serbneska vinstri skyttan til liðs við HSG Wetzlar í þýsku Bundesligunni. Kos þekkir deildina frá fyrri tíð en hann lék áður með HC Erlangen. Rúnar Sigtryggsson er þjálfari HSG Wetzlar sem eru í mikilli fallbaráttu í þýsku Bundesligunni. Partizan varð serbneskur meistari annað árið í röð í vor og sneri aftur í Meistaradeildina eftir 13 ára fjarveru. Liðið fékk eitt stig í sex leikjum, í 33–33 jafntefli við Porto. Þátttöku liðsins í Meistaradeildinni er lokið en framundan er þátttaka í Evrópudeildinni og verður dregið 6. desember.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.