Mikil óvissa ríkir um framtíð ungverska stórliðsins Győri Audi ETO KC, eins sigursælasta félagsliðs í sögu evrópsks kvennahandbolta. Samkvæmt fréttum danskra og ungverskra fjölmiðla glímir félagið við alvarlega fjárhagserfiðleika og hafa forráðamenn þess óskað eftir því að leikmenn samþykki allt að 50% launalækkun. Danska TV 2 Sport greindi frá málinu á mánudag en ungverskir fjölmiðlar hafa einnig fjallað um stöðuna. Samkvæmt heimildum miðlanna er Győr jafnframt reiðubúið að leyfa nokkrum af stærstu stjörnum sínum að yfirgefa félagið, séu önnur félög tilbúin að greiða fyrir að losa þær undan gildandi samningum. Tíðindin vekja mikla athygli enda hefur Győr um árabil verið eitt fjárhagslega sterkasta handboltafélag heims og laðað til sín margar af bestu handknattleikskonum heims. Félagið hefur sjö sinnum orðið Evrópumeistari og verið eitt allra sterkasta félagslið Evrópu undanfarinn áratug. Fjárhagsvandræðin gætu meðal annars tengst óvissu um áframhaldandi stuðning þýska bílaframleiðandans Audi, sem hefur verið aðalstyrktaraðili Győr um árabil. Samkvæmt ungverska miðlinum Index er óvíst hvort Audi Hungaria haldi samstarfinu áfram eftir tímabilið 2026/27. Fyrirtækið hefur staðfest að það muni standa við núverandi samning en ekki gefið út hvort hann verði framlengdur. Þá gætu breytingar á skattareglum í Ungverjalandi, sem fyrirhugað er að taki gildi í janúar 2027, haft veruleg áhrif á fjárhag félagsins. Árleg tekjumörk fyrir sérstaka hagstæða skattlagningu atvinnuíþróttafólks eiga að lækka úr 500 milljónum ungverskra forinta í 60 milljónir. Slíkt gæti aukið kostnað félaga sem eru með marga hálaunaða leikmenn á samningi, sérstaklega ef samið hefur verið um ákveðin nettólaun. Peter Bruun Jørgensen, handboltasérfræðingur danska TV 2 Sport, telur að málið geti haft gríðarleg áhrif á evrópskan félagsliðahandbolta. Győr hefur lengi verið fyrsti kostur margra af bestu leikmönnum heims og greitt einhver hæstu launin í íþróttinni. Ef félagið neyðist til að lækka laun eða losa sig við leikmenn gætu önnur stórlið Evrópu fengið tækifæri til að semja við leikmenn sem áður voru nánast ófáanlegir. Forráðamenn Győr hafa brugðist við fréttunum en hvorki staðfest né hafnað því að leikmenn hafi verið beðnir um að samþykkja helmingslækkun launa. Í skriflegu svari til TV 2 Sport segir félagið að samningar leikmanna séu trúnaðarmál og varar við vangaveltum sem byggjast á viðkvæmum innanhússupplýsingum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.