Fjögur félög með íslenska leikmenn innan sinna raða voru í eldlínunni í gærkvöldi. Óðinn Þór Ríkharðsson fór á kostum í stórsigri Kadetten Schaffhausen í Sviss en GC Amicitia Zürich gerði jafntefli, Bregenz tapaði naumlega í Austurríki og Wybrzeże Gdańsk beið stórt tap í Póllandi. Kadetten Schaffhausen vann öruggan tólf marka sigur gegn Suhr Aarau, 37–25, þar sem Óðinn Þór Ríkharðsson var í aðalhlutverki og skoraði níu mörk. Staðan var 16–14 í hálfleik en Kadetten tók öll völd í síðari hálfleik og vann hann með tíu marka mun, 21–11. GC Amicitia Zürich gerði 30–30 jafntefli gegn BSV Bern í svissnesku úrvalsdeildinni. Birgir Már Birgisson skoraði þrjú mörk fyrir Zürich sem þurfti að sætta sig við annað stigið eftir jafnan leik. Í Austurríki tapaði Bregenz með minnsta mun gegn Krems, 34–35. Jón Ómar Gíslason skoraði þrjú mörk fyrir Bregenz og Guðmundur Bragi Ástþórsson bætti við einu marki. Guðmundur Bragi hafði verið afar iðinn við markaskorun á tímabilinu og skorað 80 mörk í fyrstu níu deildarleikjunum en náði sér ekki á strik í markaskorun að þessu sinni. Í pólsku úrvalsdeildinni tapaði Wybrzeże Gdańsk stórt gegn Industria Kielce, 23–39. Kielce leiddi 18–9 í hálfleik og jók forskot sitt enn frekar eftir hlé. Þorvaldur Örn Þorvaldsson skoraði eitt mark fyrir Gdańsk. Úrslit gærkvöldsins: Kadetten Schaffhausen – Suhr Aarau 37–25
GC Amicitia Zürich – BSV Bern 30–30
Bregenz – Krems 34–35
Industria Kielce – Wybrzeże Gdańsk 39–23

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.