Ýmir Örn Gíslason landsliðsmaður og fyrirliði þýska úrvalsdeildarfélagsins Göppingen sneri aftur á handboltavöllinn í gærkvöldi eftir að hafa verið frá keppni vegna handarbrots. Ýmir var í leikmannahópi Göppingen sem vann dramatískan eins marks útisigur á Balingen-Weilstetten, 34–33, í sextán liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar. Þetta voru kærkomin tíðindi fyrir Göppingen og íslenska landsliðið en Ýmir hefur glímt við meiðsli undanfarnar vikur og missti meðal annars af landsleikjum Íslands gegn Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM 2028 í síðustu viku. Þýskir fjölmiðlar greindu frá því fyrr í vikunni að Ýmir væri byrjaður að æfa á ný en óvissa ríkti um hvort hann yrði tilbúinn fyrir bikarleikinn gegn Balingen. Það varð hins vegar raunin og var hann á leikskýrslu Göppingen í gærkvöldi, ásamt Oskar Neudeck sem var einnig að snúa aftur eftir meiðsli. Leikurinn í gærkvöldi var æsispennandi. Staðan var jöfn, 19–19, í hálfleik og Balingen komst þremur mörkum yfir í upphafi síðari hálfleiks. Göppingen náði hins vegar að snúa leiknum sér í vil og var yfir á lokamínútunum. Heimamenn jöfnuðu metin í 33–33 þegar rúm mínúta var eftir en Oskar Sunnefeldt skoraði sigurmark Göppingen á lokamínútunni. Balingen fékk tækifæri til að jafna í síðustu sókninni en tapaði boltanum og Göppingen fagnaði sæti í átta liða úrslitum bikarkeppninnar. Elias Newel var markahæstur Göppingen með níu mörk og Marcel Schiller skoraði átta. Ben Matschke, þjálfari liðsins, fagnaði sigrinum og sagði endurkomu meiddra leikmanna hafa skipt miklu máli. „Ég er mjög ánægður fyrir hönd liðsins og allra stuðningsmannanna sem fylgdu okkur hingað. Þetta var sannkallaður bikarbardagi. Endurkoma meiddra leikmanna var mikilvæg,“ sagði Matschke eftir leikinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.