Fjarvera Einars Braga Aðalsteinssonar af 35 manna lista Íslands fyrir heimsmeistaramótið í janúar kom þáttastjórnendum Handkastsins á óvart. Þeir ræddu val Snorra Steins Guðjónssonar í nýjasta þættinum og töldu Einar Braga hafa verið nær því að komast í lokahópinn en listinn gaf til kynna. Einar Bragi leikur með Kristianstad í Svíþjóð en gengur í raðir þýska úrvalsdeildarliðsins Göppingen næsta sumar. „Auðvitað hefði maður viljað sjá Einar Braga í hópnum,“ sagði Einar Ingi Hrafnsson. Stymmi klippari tók undir það. „Ekki minnast á það. Ég og mín fjölskylda höfum klórað okkur inn að höfuðkúpu um helgina og velt því fyrir okkur af hverju hann er ekki í þessum hópi.“ Þetta eru þeir 35 leikmenn sem koma til greina á HM í janúar Einar Ingi sagðist hafa talið Einar Braga nálægt lokahópnum og rifjaði upp að kallað hefði verið eftir því að fá einhvern „bad boy“ í liðið. „Ég hélt einmitt að hann væri númer 19 eða 20. En ekki 37 eða 38,“ sagði Stymmi. „Maður hélt að hann væri einmitt sá leikmaður sem þjálfarateymið væri spennt fyrir að athuga. Hann er að spila á hærra leveli en margir sem eru á 35 manna listanum og er að gera það vel. En Snorri virðist ekki sjá mikið til hans koma,“ sagði Einar Ingi. Kristinn Björgúlfsson tók undir undrun þeirra og benti á að Þorsteinn Leó væri á listanum eftir að hafa glímt við meiðsli undanfarna mánuði. „Þetta kom mér líka virkilega á óvart og mér finnst mjög skrítið að hann skuli ekki vera nær lokahópnum. Sérstaklega ef við horfum á það hvernig við erum að spila,“ sagði Kristinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.