Styttist í fyrsta leik Wisman með HK
HK handbolti

Það styttist í að Andrew Wisman geti leikið sinn fyrsta keppnisleik fyrir HK. Daninn gekk í raðir félagsins frá Danmörku í sumar og er farinn að hlaupa og hoppa á ný eftir ristarbrot. Hann hefur enn ekki hafið æfingar með liðinu en Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari HK, vonast til að hann nái einhverjum leikjum fyrir áramót.

„Andrew er farinn að hlaupa og hoppa en ekki byrjaður með liðinu svo það er erfitt að segja, en vonandi nær hann einhverjum leikjum fyrir áramót. Gengur vel en þessi meiðsli taka tíma,“ sagði Halldór Jóhann í samtali við Handkastið.

Wisman hlaut svokallað Jones-brot á utanverðri rist í æfingaleik gegn FH á Hafnarfjarðarmótinu í ágúst. Hann gekkst undir aðgerð og var þá gert ráð fyrir að hann yrði frá keppni í um tólf vikur. Þrír leikmenn HK brotnuðu á fjórum mínútum

HK er í 11. sæti Olís-deildarinnar með sex stig og sækir KA heim í KA-heimilið á morgun klukkan 18.30.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top