Valsmenn unnu fimm marka sigur á Selfossi, 34-29, þegar liðin mættust í Olís-deild karla í kvöld. Valsmenn voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 15-11, og fögnuðu að lokum nokkuð þægilegum heimasigri. Jafnræði var með liðunum framan af fyrri hálfleik. Valsmenn komust í 4-2 en Selfyssingar svöruðu með þremur mörkum í röð og komust yfir, 5-4. Liðin skiptust á að hafa forystuna og þegar rúmar 22 mínútur voru liðnar var staðan jöfn, 9-9. Þá tóku Valsmenn góðan sprett þar sem Gunnar Róbertsson skoraði þrjú mörk í röð áður en Bjarki Snorrason kom heimamönnum í 13-9. Valsmenn leiddu síðan með fjórum mörkum þegar gengið var til búningsklefa, 15-11. Þegar tæplega tíu mínútur voru til leiksloka voru Valsmenn komnir með sex marka forskot, 30-24. Heimamenn juku muninn í sjö mörk, 32-25, áður en Selfyssingar minnkuðu muninn á lokakaflanum. Lokatölur urðu 34-29. Bjarni í Selvindi átti stórleik fyrir Valsmenn og var markahæstur með 12 mörk en Gunnar Róbertsson skoraði sex. Jens Sigurðarson varði sjö skot og Björgvin Páll Gústavsson fjögur. Hákon Garri Gestsson var markahæstur Selfyssinga með tíu mörk en þeir Guðjón Óli Ósvaldsson og Tryggvi Sigurberg Traustason skoruðu sjö mörk hvor. Alexander Hrafnkelsson varði 12 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.