Víkingar sneru taflinu við og fögnuðu sigri í Virkinu
Emma Elísa Jónsdóttir)

Víkingur vann frábæran 31-29 sigur á Aftureldingu í Olís-deild karla í Virkinu í kvöld. Víkingar lentu sex mörkum undir í síðari hálfleik en sýndu mikinn karakter, unnu sig aftur inn í leikinn og tryggðu sér bæði stigin með sterkum lokakafla.

Víkingar byrjuðu leikinn vel og komust í 6-3 eftir tæplega tíu mínútna leik. Heimamenn leiddu 8-5 þegar Afturelding skoraði fjögur mörk í röð og komst yfir, 9-8. Jafnræði var með liðunum næstu mínúturnar en Ævar Smári Gunnarsson skoraði tvö síðustu mörk fyrri hálfleiks og tryggði Aftureldingu tveggja marka forskot í hálfleik, 15-13.

Gestirnir byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og náðu sex marka forskoti, 21-15, á 38. mínútu. Víkingar svöruðu með góðum kafla og minnkuðu muninn í tvö mörk, 20-22, áður en Afturelding tók leikhlé.

Heimamenn héldu áfram að saxa á forskot gestanna og þegar rúmar sjö mínútur voru eftir jafnaði Sigurður Páll Matthíasson metin í 25-25.

Afturelding komst aftur yfir, 27-26, en Víkingar skoruðu þrjú mörk í röð og komust í 29-27 þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. Rökkvi Pacheco Steinunnarson átti mikilvægar markvörslur á lokakaflanum og Jón Karl Einarsson kom Víkingum þremur mörkum yfir þegar 19 sekúndur voru til leiksloka. Afturelding skoraði síðasta mark leiksins og niðurstaðan varð tveggja marka sigur Víkinga, 31-29.

Fjórir leikmenn Víkings voru jafnir og markahæstir með sex mörk hver en það voru þeir Elvar Orri Hjálmarsson, Ísak Óli Eggertsson, Jón Karl Einarsson og Þorgeir Bjarki Davíðsson. Rökkvi Pacheco Steinunnarson varði níu skot.

Oscar Sven Leithoff Lykke var markahæstur hjá Aftureldingu með níu mörk en þeir Kristján Ottó Hjálmsson og Stefán Magni Hjartarson skoruðu fimm mörk hvor. Sigurjón Bragi Atlason varði sex skot og Einar Baldvin Baldvinsson þrjú.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top